Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 25. júlí 2014 16:23
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: Heimasíða Chelsea 
Didier Drogba aftur til Chelsea (Staðfest)
Didier Drogba.
Didier Drogba.
Mynd: Chelsea
Framherjinn Didier Drogba er genginn aftur til liðs við Chelsea, tveimur árum eftir að hann fór frá félaginu.

Þessi 36 ára gamli leikmaður fór frá Chelsea á frjálsri sölu eftir að hafa verið lykilmaður í liðinu sem varð Evrópumeistari árið 2012.

Skrifaði hann undir eins árs samning á Stamford Bridge.

Drogba lék um skamma stund með Shanghai Shenhua í Kína eftir að hann fór frá Chelsea, en síðustu 18 mánuði spilaði hann með Galatasaray.

Drogba þarf vart að kynna frekar fyrir áhagendum enska boltans. Fyrri dvöl hans hjá félaginu spannaði átta ár og skoraði hann á þeim tíma 157 mörk í 341 leik.
Athugasemdir
banner
banner