KV heldur upp á tíu ára afmæli félagsins á morgun þegar liðið mætir Tindastóli í 1. deildinni. KSÍ hefur gefið félaginu undanþágu til að spila á heimavelli sínum KV Park, eða gervigrasvellinum hjá KR, af þessu tilefni.
Í tilefni dagsins ætla strákarnir í KV að kveikja upp í grillinu og aldrei að vita nema menn sjáist með fyndna hatta eða blöðrur.
Eins og flestir vita fékk KV ekki leyfi til að spila á heimavelli sínum í sumar þar sem hann uppfyllir ekki kröfur leyfiskerfis KSÍ. Sambandið hefur hinsvegar veitt undanþágu í þessum leik þar sem Rey Cup stendur yfir í Laugardalnum en þar hefur KV leikið sína heimaleiki.
KV er í áttunda sæti deildarinnar með 14 stig eftir 12 leiki, aðeins einu stigi frá fallsæti. Tindastóll er langneðst í deildinni og ekkert sem virðist geta komið í veg fyrir fall niður í 2. deildina.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir