banner
   fös 25. júlí 2014 23:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Lallana missir af byrjun tímabilsins vegna meiðsla
Mynd: Liverpool
Útlit er fyrir að Adam Lallana missi af byrjun tímabilsins á Englandi eftir að hafa orðið fyrir hnémeiðslum á æfingu.

Hinn 26 ára, Lallana kom til Anfield frá Southampton fyrr í mánuðinum fyrir 25 milljónir punda og var búist við að hann myndi spila sinn fyrsta leik í vináttuleik gegn Olympiakos á sunnudaginn í Chicago.

Fyrsti leikur Liverpool á komandi tímabili er einmitt gegn Southampton, 17. Ágúst.

Lallana var mjög góður með Southampton á síðustu leiktíð og komst í lið ársins á Englandi ásamt því að hafa farið á HM í Brasilíu með enska landsliðinu þar sem hann kom af bekknum gegn Ítalíu og Úrúgvæ ásamt því að byrja gegn Kosta Ríka.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner