„Maður er náttúrulega bara hundsvekktur og frábær skemmtun fyrir alla. Mér fannst Fylkisstelpurnar bara frábærar í leiknum og éger frekar svekkt að hafa tapað í vítaspyrnukeppni“, sagði Ragna Lóa Stefánsdóttir eftir hörku undanúrslitaleik gegn Selfossi þar sem leikurinn fór í framlengingu og svo vítaspyrnukeppni.
Lestu um leikinn: Fylkir 2 - 5 Selfoss
„Það er þvílíkur karakter í þessu Fylkisliði og ætlum alltaf að gefa okkur alla í þessa leik. Við ætluðum okkur í bikarúrslitin en það gékk ekki eftir í dag. En ég er hrikalega stolt af þessum stelpum“.
„Þóra er er mjög örugg i vítum og þetta var allt planað fyrir leikinn. Hún er mjög örugg í vítum en þetta lá ekki fyrir okkur í dag“, Þóra Björg markvörður Fylkis tók fyrstu spyrnu liðsins en Alexa Gaul varði hana vel.
„Við grenjum nú ekkert við mikið Fylkisstelpur. Við erum alltaf brosandi og jákvæðar og reynum að fara eins langt á stemmningu og við getum. Við erum ekkert að fara að hægja á okkur í deildinni“, sagði Ragna Lóa að lokum en Fylkir er í 2. sæti í Pepsi-deildinni og á leik við Breiðablik næsta þriðjudag en Blikarnir geta tekið 2. sætið af Fylki með sigri í leiknum.
Nánar er rætt við Rögnu Lóu í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir