Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 25. júlí 2014 16:30
Magnús Már Einarsson
Þjálfaraskipti hjá Hetti
Mynd: Björn Ingvarsson
Gjoko Ilijovski hefur látið af störfum sem þjálfari Hattar á Egilsstöðum.

Gunnlaugur Guðjónsson mun taka við liðinu og stýra því út tímabilið.

,,Sex ára sonur hans er alvarlega veikur og þess vegna varð hann að hætta. Það hafa allir skilning á því," sagði Gunnlaugur við Fótbolta.net í dag.

Höttur er í þriðja sæti í 3. deildinni, stigi á eftir Magna í öðru sætinu.

Næsti leikur liðsins er gegn Hamarsmönnum á sunnudaginn.
Athugasemdir
banner