Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   mán 25. júlí 2016 18:00
Magnús Már Einarsson
Arteta eyddi öllum Arsenal myndum sínum af Instagram
Svona er Instagram síða Arteta í dag.
Svona er Instagram síða Arteta í dag.
Mynd: Twitter
Stuðningsmenn Arsenal eru margir hverjir svekktir út í Mikel Arteta, fyrrum fyrirliða liðsins eftir að hann eyddi öllum gömlum Arsenal tengdum myndum af Instagram síðu sinni.

Arteta hefur leikið með Arsenal undanfarin fimm ár og síðustu tvö tímabil var hann fyrirliði liðsins.

Á dögunum fór Arteta frá Arsenal yfir til Manchester City þar sem hann er nú í þjálfarateymi Pep Guardiola.

Hinn 34 ára gamli Arteta ákvað um helgina að eyða öllum gömlum Arsenal myndum af Instagram síðu sinni.

Stuðningsmenn Arsenal eru margir hverjir ósáttir við þetta og Arteta hefur til að mynda fengið að heyra það á Twitter fyrir þetta athæfi sitt.

Instagram síða Mikel Arteta
Athugasemdir
banner
banner
banner