Sammy Lee hefur verið ráðinn í þjálfarateymi enska landsliðsins en þetta var staðfest í dag.
Sam Allardyce, stóri Sam, var ráðinn landsliðsþjálfari í síðustu viku og litli Sam mun nú aðstoða hann.
Sammy Lee var í þjálfarateymi enska landsliðsins þegar Sven Goran Eriksson var landsliðsþjálfari á sínum tíma.
Lee þekkir Allardyce einnig vel eftir að hafa verið í þjálfarateymi Bolton þegar Stóri Sam var stjóri þar.

Lee var síðast í þjálfaraliði Sotuhampton en hann er hættur þar og tekinn til starfa hjá enska landsliðinu.
Athugasemdir