Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 25. júlí 2016 08:00
Arnar Geir Halldórsson
Varane: Vil vera hjá Real Madrid í mörg ár í viðbót
Líður vel í Madrid
Líður vel í Madrid
Mynd: Twitter
Franski varnarmaðurinn Raphael Varane kveðst mjög ánægður í herbúðum spænska stórveldisins Real Madrid og sér enga ástæðu til að yfirgefa félagið á næstu árum.

Varane er í harðri samkeppni við Sergio Ramos og Pepe um sæti í byrjunarliðinu en þessi 23 ára gamli miðvörður hræðist ekki þá samkeppni.

„Ég vil vera hér. Ég tel að hér hafi ég allt sem ég þarf til að bæta mig. Ég finn að ég er mikils metinn af félaginu og stuðningsmönnunum."

„Bestu leikmennirnir eru hérna og ég get ekki hugsað mér betri stað að vera á. Ég á enn eftir að sýna mitt besta en ég elska að vera hérna og vil vera hér í mörg ár í viðbót,"
segir Varane.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner