Barcelona ætlar að leggja fram annað tilboð í Philippe Coutinho leikmann Liverpool. Sky greinir frá þessu í dag.
Liverpool hafnaði á dögunum 72 milljóna punda tilboði frá Barcelona í Coutinho.
Félagið hefur sagt að Coutinho sé ekki til sölu og stjórinn Jurgen Klopp sagði það sama fyrir helgi.
Coutinho skoraði þrettán mörk og lagði upp sjö með Livepool í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en hann er í algjöru lykilhlutverki hjá liðinu.

Hinn 25 ára gamli Coutinho gæti fyllt skarð landa síns Neymar hjá Barcelona ef hann fer til PSG í sumar.
Athugasemdir