Antonio Conte, stjóri Chelsea, er ósáttur með David Ospina, markvörð Arsenal. Hann hefur látið Ospina heyra það!
Chelsea og Arsenal mættust í æfingaleik í Kína um síðastaliðna helgi, en Pedro, leikmaður Chelsea, þurfti að fara af velli í leiknum og beint upp á spítala eftir að hafa lent í samstuði við Ospina.
Chelsea og Arsenal mættust í æfingaleik í Kína um síðastaliðna helgi, en Pedro, leikmaður Chelsea, þurfti að fara af velli í leiknum og beint upp á spítala eftir að hafa lent í samstuði við Ospina.
Pedro þurfti að yfirgefa æfingaferð Chelsea og fara heim til Englands í nánari skoðanir. Spánverjinn þarf að hvíla næstu tíu dagana, en hann má síðan hefja æfingar á nýjan leik með grímu.
Blaðamenn spurðu Conte út í samstuðið, en hann var alls ekki sáttur með það hvernig Ospina fór í það.
„Nei, alls ekki!" sagði Conte spurður út í það hvort Ospina væri ekki að reyna við boltann. „Ég var leikmaður og þekki muninn, hann reyndi ekki að vinna boltann," sagði Conte.
Myndband má sjá hér að neðan sem sýnir samstuðið. Myndbandið er ekki fyrir viðkvæma.
Athugasemdir