Ejub Purisevic og hans menn í Víking Ólafsvík töpuðu í kvöld fyrir Val í lokaleik 12 umferðar Pepsi-deildar karla. Með sigri hefði liðið getað lyft sér upp í 5 sætið en í stað þess þá sitja þeir eftir í 10 sætinu.
Lestu um leikinn: Víkingur Ó. 1 - 2 Valur
Víkingar byrjuðu leikinn alls ekki vel og voru Valsarar alltaf líklegir til þess að skora í byrjun leiks.
„Ég var ekki sáttur með fyrri hálfleikinn. Við vorum of óákveðnir og vorum alltaf að bíða eftir því hvað Valur ætlaði sér að gera. Við kláruðum samt fyrri hálfleikinn vel en fáum svo mark á okkur snemma í seinni hálfleik sem gerði okkur erfitt fyrir," sagði Ejub svekktur
Víkingar fara í heimsókn til KR í Frostaskjólið en þeir eru með stigi meira í sætinu fyrir ofan Víkinga.
Ejub vill hins vegar ekki hugsa um þann leik sem einhvern 6 stiga baráttu leik heldur fer hann með það hugarfar að njóta sín að spila á móti liði eins og KR
Viðtalið má sjá í heild sinni í tækinu hér fyrir ofan
Athugasemdir