Orri Einarsson framleiðslustjóri Áttunnar gerði sér lítið fyrir og skellti sér í húðflúr í dag. Það er ekki frásögufærandi nema fyrir þær sakir að hann ákvað að fá nafnið á landsliðskonunni, Fanndísi Friðriksdóttur á bakið á sér.
Nökkvi Fjalar skoraði á Orra fyrir mótið að fá sér húðflúr með öllum markaskorurum íslenska kvennalandsliðsins á EM og fyrir aftan nafnið kæmi mínútan sem markið var skorað á.
Nökkvi Fjalar skoraði á Orra fyrir mótið að fá sér húðflúr með öllum markaskorurum íslenska kvennalandsliðsins á EM og fyrir aftan nafnið kæmi mínútan sem markið var skorað á.
Fanndís Friðriksdóttir skoraði fyrsta og eina mark Íslands á EM í Hollandi hingað til gegn Sviss í síðasta leik á 33. mínútu leiksins.
Orri tók áskorunni og sýndi Áttan það í beinni á Instagrami sínu.
„Vonandi verða bara tvö til þrjú íslensk mörk skoruð á morgun og Orri verður kominn með nokkur nöfn á bakið á sér þegar að keppnin er búin. Við strákarnir erum mættir til Brussel og ætlum að kíkja á leikinn á morgun," sagði Hermann Árnason einn af strákunum í Áttunni.
Hægt að fylgjast með þeim á Instagram og Snapchat hjá Áttunni.
Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.
Leikir Íslands á EM:
Ísland 0-1 Frakkland
Ísland 1-2 Sviss
Ísland 0-3 Austurríki
Athugasemdir