Nýliðar Brighton & Hove Albion í ensku úrvalsdeildinni hafa fengið framherjann Izzy Brown á láni frá Chelsea.
Hinn tvítugi Brown var á láni hjá Huddersfield á síðasta tímabili en hann hjálpaði liðinu þá upp í ensku úrvalsdeildina.
Hinn tvítugi Brown var á láni hjá Huddersfield á síðasta tímabili en hann hjálpaði liðinu þá upp í ensku úrvalsdeildina.
„Eðlileg framþróun Izzy er að taka skrefið upp í ensku úrvalsdeildina eftir gott tímabil í Championship deildinni á síðasta tímabili," sagði Chris Hughton stjóri Brighton.
Izzy hóf feril sinn hjá WBA en hann fór til Chelsea sumarið 2013. Á þarsíðasta tímabili var Izzy í láni há Vitesse Arnhem í Hollandi.
Athugasemdir