Hinn brasilíski Neymar hefur á undanförnum dögum verið sterklega orðaður við Paris Saint-Germain. Mikill hiti færðist í þessar sögur um síðastliðna helgi og birti Sky Sports m.a. frétt þess efnis að 90% líkur væru á því að Neymar væri á förum frá Barcelona í sumar.
Sjá einnig:
Sky Sports: 90% líkur að Neymar yfirgefi Barcelona
Sjá einnig:
Sky Sports: 90% líkur að Neymar yfirgefi Barcelona
Neymar hefur ekki sjálfur tjáð sig um þessa orðróma, en margir af liðsfélögum hans hafa gert það. Þeir eru allir á sama máli, þeir vilja að Neymar haldi kyrru í Katalóníu.
Það verður fróðlegt að sjá hvað Neymar gerir.
Í dag birtir Franski fjölmiðillinn Le Parisien frétt, en í henni segir að Neymar hafi beðið PSG um að kaupa Philippe Coutinho frá Liverpool þegar hann er kominn til Parísar. Hann vill spila með Coutinho.
Kaveh Solhekol hjá Sky Sports segir frá þessu á Twitter, en hann lýkur færslu sinni með því að segja „Gangi þér vel með það."
Parisien reporting Neymar has asked PSG to sign Philippe Coutinho from Liverpool after they've signed him. Good luck with that one
— Kaveh Solhekol (@SkyKaveh) July 25, 2017
Athugasemdir