Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 25. júlí 2017 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
West Brom hefur áhuga á Ben Gibson
Ben Gibson.
Ben Gibson.
Mynd: Getty Images
West Brom hefur áhuga á því að kaupa varnarmanninn Ben Gibson frá Middlesbrough samkvæmt heimildum Sky Sports.

Gibson var einn af fáum ljósu punktum í liði Middlesbrough sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Boro hélt 11 sinnum hreinu með Gibson í hjarta varnarinnar.

Hann náði þó ekki að bjarga liðinu frá falli úr ensku úrvalsdeildinni.

Gibson var valinn í enska landsliðshópinn í mars, en West Brom vonast til þess að landa honum á næstu dögum.

„Við viljum endilega fá þrjá eða fjóra leikmenn. Við erum í viðræðum við tvo núna," sagði Tony Pulis, knattspyrnustjóri West Brom, þegar hann ræddi við Sky Sports á dögunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner