Pep Guardiola, þjálfari Manchester City, hefur varið þá ákvörðun að skipta Joe Hart út sem aðalmarkmanni liðsins.
Hart spilaði í 1-0 sigrinum á Steaua Bucharest í forkeppni Meistaradeildarinnar í gær en það var mögulega hans síðasti leikur fyrir liðið því hann hefur hingað til verið á varamannabekk liðsins í deildinni
Spænski þjálfarinn, spjallaði við fjölmiðlamenn eftir leikinn í gær og virtist hann nokkurn vegin vera að kveðja Joe Hart.
„Joe er ennþá okkar leikmaður. Hann er goðsögn hjá félaginu og ein af ástæðum þess að félagið er það sem það er. Ég veit hann hjálpaði félaginu að komast á þennan stall."
„Ég er hins vegar hér til að taka ákvarðarnir. Ég geri mikið af mistökum en ég reyni að vera hreinskilinn. Ég get ekki hundsað tilfinningarnar mínar. Ég var því hreinskilinn við Joe. Það er því miður ekki hægt að gleðja alla," sagði Guardiola.
Athugasemdir