Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 25. ágúst 2016 09:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Joe Hart er farinn af Etihad vellinum
Joe Hart er að fara frá City.
Joe Hart er að fara frá City.
Mynd: Getty Images
Joe Hart hefur líklegast leikið sinn síðasta leik fyrir Manchester City en Pep Guardiola, þjálfari liðsins er ekki stærsti aðdáandi hans.

Hart hefur verið á bekknum í fyrstu tveim leikjum City á leiktíðinni en Willy Caballero hefur varið mark liðsins hingað til.

Allar líkur eru á því að Claudio Bravo sé á leiðinni til City og að Hart sé því á leiðinni frá félaginu. Mynd af Hart hefur verið framan á leikvangi liðsins, Etihad vellinum, í nokkurn tíma en nú er búið að skipta um mynd.

Hér að neðan má sjá myndina sem var af Hart og myndina sem er komin í staðin.



Athugasemdir
banner
banner