Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 25. ágúst 2016 23:30
Gunnar Karl Haraldsson
Klopp: Ekki vandamál milli mín og Sturridge
Jurgen Klopp og Daniel Sturridge.
Jurgen Klopp og Daniel Sturridge.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool segir að ekkert vandamál sé á milli hans og Daniel Sturridge

Sturridge spilaði á kanti gegn Burnley og kom inná gegn Burton Albion og fór þá einnig á kantinn. Eftir 5-0 sigur Liverpool á Burton Albion í Enska deildarbikarnum tjáði Daniel Sturridge fjölmiðlum að hann væri ekki ánægður með stöðuna sem Klopp er að spila honum í.

Klopp tjáði sig um málið við fjölmiðla: „Bæði mörkin sem hann skoraði gegn Burton komu þegar hann var kominn út úr sinni stöðu í framlínuna. Hann er virkilega klár leikmaður og er góður að koma sér í stöður þar sem erfitt er að verjast honum.

Það er ekkert vandamál á illi okkar, ég veit ekki alveg hvað hann sagði en þegar við töluðum saman var ekkert vandamál"
.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner