Óli Stefán þjálfari Grindavíkur var þokkalega sáttur eftir jafntefli gegn Selfyssingumi í kvöld. Selfyssingar jöfnuðu leikinn undir lokin.
„Það var býsna svekkjandi. Við erum ekki vanir því að fá á okkur mörk undir lok leikja og við höfum verið að loka svona leikjum vel en svo þegar þetta kemur þá er maður bara svekktur."
„Þetta er í fyrsta skipti í mjög langan tíma sem ég sé þreytumerki á liðinu og við vorum ekki alveg jafnferskir og við erum vanir. Við komumst í ágætis stöður en vorum ekki nógu góðir til þess að setja okkur almennilega í gegn."
Óli segir að jafntefli hafi verið sanngjörn niðurstaða.
„Já það má auðvitað ekki gleyma því að Selfoss er með mjög gott lið og þetta er þeirra heimavöllur. Við virðum þetta stig alveg gríðarlega. Ég er mjög ánægður með stigið en hefði samt viljað gera örlítið betur."
„Við vorum í góðri stöðu fyrir þennan leik og erum ennþá í góðri stöðu, þetta er allt saman í okkar höndum. Við erum náttúruilega bara að reyna að vinna þessa deild."
Athugasemdir