Ronald Koeman, stjóri Everton, segist aldrei hafa haft áhuga á Joe Hart, markverði Manchester City og enska landsliðsins.
Orðrómur hefur verið uppi um að Everton vildi fá Hart en ekkert var til í þeim kjaftasögum.
Orðrómur hefur verið uppi um að Everton vildi fá Hart en ekkert var til í þeim kjaftasögum.
Nei var svarið þegar Koeman var spurður að því á fréttamannafundi hvort hann vildi fá Hart. Einfalt og gott.
Hart hefur fengið þau skilaboð að honum sé frjálst að yfirgefa City en Pep Guardiola er að ganga frá kaupum á markverðinum Claudio Bravo.
Hart var með fyrirliðabandið gegn Steaua Búkarest í Meistaradeildinni í gær en það var líklega hans síðasti leikur fyrir Manchester City.
Athugasemdir