Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 25. ágúst 2016 13:15
Magnús Már Einarsson
Tottenham í viðræðum um kaup á Zaha
Mynd: Getty Images
Tottenham er í viðræðum við Crystal Palace um kaup á kantmanninum Wilfried Zaha.

Talið er að Tottenham sé að leggja fram 15 milljóna punda í Zaha.

Manchester United keypti Zaha í janúar 2013 á 10 milljónir punda.

Hinn 23 ára gamli Zaha náði aldrei að festa sig í sessi á Old Trafford og hann var á endanum lánaður aftur til Crystal Palace. Í febrúar í fyrra var Zaha keyptur aftur til Palace.

Á síðasta tímabili skoraði Zaha fimm mörk í 43 leikjum og lagði upp sjö mörk að auki.
Athugasemdir
banner
banner