„Ég er drullusvekktur, þetta er fótboltaleikur sem við áttum alltaf að vinna," voru fyrstu viðbrögð Úlfs Arnars Jökulssonar, þjálfara Aftureldingar eftir 2-2 jafntefli við Gróttu í kvöld.
Afturelding var komið í 2-0 í seinni hálfleik en Gróttu tókst að skora tvö mörk í seinni hállfeik og jafna leikinn.
Afturelding var komið í 2-0 í seinni hálfleik en Gróttu tókst að skora tvö mörk í seinni hállfeik og jafna leikinn.
Lestu um leikinn: Grótta 2 - 2 Afturelding
„Leikurinn átti að vera búinn í hálfleik. Við náðum bara að skora eitt mark en við vorum með öll völd á vellinum."
Úlfur var ansi ósáttur með sitt lið á lokakaflanum og segir það verða að þroskast.
„Það er barnalegt að fá á sig skyndisókn út frá markspyrnu. Við verðum að fara að þroskast," sagði Úlfur.
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir