Þorsteinn Már Ragnarsson fyrirliði Víkings Ólafsvíkur var að vonum svekktur með úrslit dagsins en hann og hans liðsfélagar biðu lægri hlutar gegn KR á Ólafsvíkurvelli. Þorsteinn var í baráttunni við Stefán Loga þegar boltinn endaði í neti KR-inga en Erlendur dæmdi þá brot á Þorstein
Lestu um leikinn: Víkingur Ó. 0 - 1 KR
Þorsteinn var ánægður með spilamennsku síns liðs þrátt fyrir að hafa ekki náð að landa stigi
"Mjög svekkjandi að tapa þessum leik vegna þess að mér fannst þetta mjög jafn leikur heilt yfir. Við hefðum alveg getað skorað og þeir hefðu alveg getað bætt í"
Fréttamaður Vísis og Stöð2Sports sýndi Þorsteini myndskeið af því þegar mark var dæmt af Víking.
"Mér finnst þetta bara mjög skrítin ákvörðun. Mér fannst nú frekar vera brotið á mér frekar en eitthvað annað. Indriði hélt mér svo er eitthvað klafs. Ég veit ekki hvað ég á að gera annað en að vera þarna. Svo kemur Stebbi (Stefán Logi) yfir mig. Mér fannst þetta bara vera sjálfsmark."
Þorsteinn lék 4 tímabil með KR en hann kom aftur heim í Ólafsvík fyrir þetta sumar. KR fær Fylki í heimsókn í lokaumferðinni og með sigri þá tryggja þeir sæti Víkinga í efstu deild
"Ég verð að halda með þeim næstu helgi, en fyrst og fremst þá verðum við bara að mæta eins og menn upp í Garðabæ og treysta á sjálfa okkur til þess að tryggja sæti í deildinni en ekki leggja okkar traust á einhverja aðra."
Athugasemdir