Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 25. september 2016 15:29
Arnar Geir Halldórsson
Þýskaland: Schalke enn án stiga
Markus Weinzierl byrjar hræðilega hjá Schalke
Markus Weinzierl byrjar hræðilega hjá Schalke
Mynd: Getty Images
Hoffenheim 2-1 Schalke
0-1 Eric Maxim Choupo-Moting (´4)
1-1 Andrej Kramaric (´17)
2-1 Lukas Rupp (´41)

Vandræði Schalke í þýsku Bundesligunni halda áfram en liðið beið lægri hlut fyrir Hoffenheim í fyrri leik dagsins.

Eric Choupo-Moting kom Schalke yfir í upphafi leiks en forystan entist stutt því Andrej Kramaric jafnaði fyrir heimamenn eftir sautján mínútur. Lukas Rupp kom svo Hoffenheim yfir undir lok fyrri hálfleiks og fleiri urðu mörkin ekki.

Schalke því enn án stiga eftir fimm leiki og sitja einir á botni deildarinnar. Hreint ótrúlega ömurleg byrjun hjá liði sem skartar leikmönnum á borð við Klaas Jan-Huntelaar, Breel Embolo og Benedikt Höwedes svo einhverjir séu nefndir.
Athugasemdir
banner
banner
banner