„Fyrri háflleikurinn hjá okkur var skelfilegur, hann var eiginlega bara til skammar." sagði Veigar Páll Gunnarsson leikmaður Stjörnunnar eftir 0-1 sigur þeirra á Fjölni í Grafarvoginum.
Lestu um leikinn: Fjölnir 0 - 1 Stjarnan
„Er ekki bara fínt í svona leikjum að fá reynsluna inná?" sagði Veigar aðspurður út í hvaða skilaboð hann og Baldur fengu áður en þeir komu inn á völlinn í seinni hálfleik.
Veigar hefur lítið fengið að spila hjá Stjörnumönnum í sumar en segir skrokkinn þó í góðu standi.
„Skrokkurinn er bara eins og hann er oftast bara á mér, ég hef lítið fengið að spila í sumar og það setur smá strik í reikninginn hjá mér en svona miðað við spilatíma er hann í fínu standi."
Spurður um hvort hann ætli að halda á önnur mið eftir tímabilið sagði Veigar:
„Ég er ekkert að spá í einu né neinu akkúrat núna annað en að klára þetta tímabil með Stjörnunni og svo fer ég kannski að hugsa út í hvað ég geri."
Athugasemdir