Varnarmaðurinn reyndi Kristján Örn Sigurðsson verður ekki áfram með Þórsurum í Inkasso-deildinni næsta sumar.
Kristján Örn tók skóna af hillunni síðastliðinn vetur og var spilandi aðstoðarþjálfari hjá Þór í sumar. Bróðir hans, Lárus Orri Sigurðsson, þjálfar Þór.
Kristján Örn tók skóna af hillunni síðastliðinn vetur og var spilandi aðstoðarþjálfari hjá Þór í sumar. Bróðir hans, Lárus Orri Sigurðsson, þjálfar Þór.
Kristján skoraði tvö mörk í átján leikjum í Inkasso-deildinni í sumar en hann var fastamaður í vörn Þórsara eftir að hafa tekið sér hlé frá fótbolta árið 2015.
„Það var mjög skemmtilegt að spila í ár," sagði Kristján við Fótbolta.net í dag.
Hinn 36 ára gamli Kristján er fyrrum landsliðsmaður en hann lék í Noregi með Brann og Hönefoss frá 2005 til 2015.
Kristján er að flytja ásamt fjölsyldu sinni aftur út til Noregs. Allt bendir til þess að skórnir séu komnir upp á hillu hjá honum.
„Ég stórefast um að ég spili áfram úti. Það eru litlar líkur á því," sagði Kristján.
Athugasemdir