Þór/KA/Hamrarnir urðu bikarmeistarar í 2. flokki kvenna í gær með 1-0 sigri á Stjörnunni. Liðið er þar með tvöfaldur meistari en það hafði áður tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn.
Andrea Mist Pálsdóttir, útileikmaður Þórs/KA í Pepsi-deild kvenna, varði mark 2. flokks í gær vegna markmannsvandræða.
Andrea Mist Pálsdóttir, útileikmaður Þórs/KA í Pepsi-deild kvenna, varði mark 2. flokks í gær vegna markmannsvandræða.
Margrét Árnadóttir skoraði sigurmarkið í fyrri hálfleik, en hún hefur komið nokkuð við sögu með aðalliði Þórs/KA á tímabilinu.
Auk þeirra Margrétar og Andreu Mistar hafði Karen María Sigurgeirsdóttir nóg að gera um helgina en leikmennirnir þrír tóku allar einhvern þátt í 3-2 tapinu gegn Grindavík í Pepsi-deildinni degi áður. Þá hafði Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir varnarmaður Stjörnunnar verið í byrjunarliði meistaraflokks gegn Breiðablik á laugardag.
Við óskum norðanstúlkum til hamingju með árangurinn.
Athugasemdir