lau 25. október 2014 14:33
Þórður Vilberg Guðmundsson
Pellegrini: West Ham voru góðir í dag
Manuel Pellegrini
Manuel Pellegrini
Mynd: Getty Images
Manuel Pellegrini knattpyrnustjóri Manchester City sagði eftir leik liðsins gegn West Ham í dag að West Ham hefðu einfaldlega spilað vel og gert sínum mönnum erfitt fyrir.

“West Ham spilaði vel í dag, í fyrri hálfleik voru þeir mjög ákafir og spiluðu vel. Ég tel ekki að við höfum verið slakir, þeir voru einfaldlega mjög góðir,“ sagði Pellegrini

“Við fengum fullt af tækifærum til að skora, skutum meðal annars í stöng, en það er erfitt að sigra ef þú nýtir ekki færin þín,“

“Tímabilið er rétt að byrja, það eru ennþá 80 stig í pottinum svo við munum halda áfram að berjast,“ sagði Pellegrini að lokum.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner