Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   þri 25. október 2016 21:27
Þorsteinn Haukur Harðarson
Klopp: Sturridge var frábær
Klopp á hliðarlínunni í kvöld.
Klopp á hliðarlínunni í kvöld.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, þjálfari Liverpool, var eðlilega ánægður með sína menn í 2-1 sigri gegn Tottenham í enska deildabikarnum í kvöld.

„Leikurinn spilaðist eins og ég reiknaði með, á jákvæðan hátt fyrir okkur. Við misstum einbeitinguna á köflum en heilt yfir vorum við góðir," sagði Klopp eftir leikinn.

Daniel Sturridge skoraði tvívegis fyrir Liverpool í kvöld og hlaut að launum hrós frá þjálfaranum.

„Hann gerði það sem þurfti að gera og var frábær. Hann hefði getað skorað þrjú eða fjögur mörk."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner