Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 25. október 2016 10:10
Magnús Már Einarsson
Leikmenn Man Utd hissa á aðferðum Mourinho
Lítið úti á æfingavelli.
Lítið úti á æfingavelli.
Mynd: Getty Images
Leikmenn Manchester United eru hissa á aðferðum Jose Mourinho það sem af er tímabils en þetta segir í grein The Times í dag.

Mourinho þykir vera kaldur í samskiptum við leikmenn og hann vill ekki vera mikið í kringum liðið.

Portúgalinn mætir ekki á æfingar úti á æfingasvæði heldur situr og fylgist með frá skrifstofu sinni.

Rui Faria, aðstoðarmaður Mourinho, sér hins vegar um æfingarnar úti á æfingavellil.

Leikmenn Manchester United eru hissa á þessu og ósáttir þar sem þeir bjuggust við því að Mourinho myndi sýna þeim meiri athygli þegar hann var ráðinn stjóri í sumar.

Manchester United tapaði 4-0 gegn Chelsea um helgina en Mourinho hefur beðið leikmenn að bregðast við úrslitunum með því að sýna að þeir séu menn en ekki börn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner