Liverpool og Tottenham eigast nú við í enska deildarbikarnum en þegar þetta er skrifað er staðan 2-0 fyrir Liverpool. Daniel Sturridge hefur skorað bæði mörk Liverpool.
Athuglir áhugamenn um knattspyrnu hafa tekið eftir því að í þjálfarateymi Liverpool í kvöld er maður sem er skuggalega líkur Jurgen Klopp, þjálfara félagsins.
Einhverjir hafa velt því fyrir sér hver tvífari Klopp á bekknum er. Maðurinn heitir Andreas Kornmayer og er styrktarþjálfari hjá Liverpool. Hann kom í þjálfarateymi liðsins frá Bayern München í sumar.
Mynd af þeim má sjá hér að neðan.
When you finally track down your long lost twin... #Klopp pic.twitter.com/EDtysKjhiK
— Lookalikes 24seven (@LookalikeFactor) October 25, 2016
Athugasemdir