Danski framherjinn Sören Andreasen verður ekki áfram hjá ÍBV en þetta staðfesti Kristján Guðmundsson, þjálfari liðsins, í samtali við Fótbolta.net í dag.
Hinn tvítugi Sören kom til ÍBV á miðju sumri og spilaði átta leiki í Pepsi-deildinni.
Hinn tvítugi Sören kom til ÍBV á miðju sumri og spilaði átta leiki í Pepsi-deildinni.
Eins og fram kom á Fótbolta.net í gær þá er danski kantmaðurinn Simon Smidt einnig á förum frá ÍBV.
Sóknarmiðjumaðurinn Mikkel Maigaard Jakobsen verður hins vegar áfram í Eyjum en hann er samningsbundinn í ár í viðbót.
Mikkel skoraði tvö mörk í tuttugu leikjum í Pepsi-deildinni í sumar en hann spilaði einnig alla leiki ÍBV í Borgunarbikarnum þar sem liðið fór í úrslit.
Athugasemdir