„Markaðurinn á Íslandi er ekki stór og þegar leikmenn eru samningslausir fá þeir nokkur símtöl. Stjarnan var fljótlega efst á blaði hjá mér," segir varnarmaðurinn Brynjar Gauti Guðjónsson sem skrifaði undir tveggja ára samning við Stjörnuna í dag.
Hann fundaði með Rúnari Páli Sigmundssyni, þjálfara Stjörnunnar, og leist vel á það sem hann hefur fram að færa.
Hann fundaði með Rúnari Páli Sigmundssyni, þjálfara Stjörnunnar, og leist vel á það sem hann hefur fram að færa.
„Ég átti fund með Rúnar og mér lýst virkilega vel á hvernig hann vill leggja hlutina upp. Það er mikill metnaður hérna í Garðabænum og ég hlakka til að taka þátt í því."
Brynjar hafði sett stefnuna á atvinnmennskuna erlendis en ekkert verður úr því í bili allavega.
„Það var einhver áhugi hér og þar en ekkert fór sem lengra. Þá verður maður bara að fara á stað þar sem maður getur haldið áfram að bæta sig og sjá hvert það skilar manni. Það er enn mitt markmið að komast í atvinnumennskuna," segir Brynjar sem hefur spilað með ÍBV undanfarin ár.
„Ég átti mjög góðan tíma í Vestmannaeyjum og það er erfitt að kveðja alla þá flottu menn sem eru þar í kringum liðið. Ég fann það í sumar að það væri kominn tími til að taka nýja áskorun og breyta til. Eina markmið mitt í Stjörnunni er að berjast um titla."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir