Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 25. nóvember 2014 17:30
Magnús Már Einarsson
Heskey til í að hjálpa Leicester í markaþurrðinni
Heskey í leik með Leicester árið 1999.
Heskey í leik með Leicester árið 1999.
Mynd: Getty Images
Eftir ágætis byrjun í ensku úrvalsdeildinni hafa nýliðar Leicester sogast niður í fallbaráttu en þeir hafa ekki náð að skora í síðustu fimm leikjum.

Nú segist Emile Heskey vera tilbúinn að mæta svæðið og redda málunum.

Hinn 36 ára gamli Heskey hefur verið án félags síðan hann hætti að spila í áströlsku deildinni í apríl.

Heskey ólst upp hjá Leicester og spilaði með aðalliði félagsins í sex ár áður en hann samdi við Liverpool um áramótin. Hann vill snúa aftur til Leicester.

,,Ég myndi ólmur vilja koma til baka. Þetta er frábært félag sem hjálpaði mér að afreka það sem ég hef náð að afreka á ferlinum," sagði Heskey.
Athugasemdir
banner
banner
banner