Stuðningsmenn Manchester United eru þeir háværustu í ensku úrvalsdeildinni en Mirror greinir frá þessu í kvöld.
Old Trafford er þá háværastur allra leikvanga í úrvalsdeildinni.
Old Trafford er þá háværastur allra leikvanga í úrvalsdeildinni.
Mirror birti grein sem byggir á tölum frá samtökum íþróttafréttamanna en þeir nota appið, Sound Meter til þess að mæla lætin á leikvöngunum.
Hávaðinn í stuðningsmönnum Manchester United mældist 163 dB en mælt var bæði á heima- og útivelli.
Stuðningsmenn West Ham og Aston Villa eru í neðstu sætunum með 152 dB en það vekur mikla athygli að Liverpool er einungis með 153 dB.
Old Trafford er þá háværasti leikvangurinn en næst á eftir koma Emirates, heimavöllur Arsenal og Britannia, heimavöllur Stoke.
Athugasemdir