Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 25. nóvember 2015 15:00
Magnús Már Einarsson
Barcelona býst við að Neymar geri nýjan samning
Mynd: Getty Images
Barcelona vonast til að brasilíski snillingurinn Neymar muni skrifa undir nýjan samning við félagið á næstunni.

Hinn 23 ára gamli Neymar hefur farið á kostum að undanförnu en faðir hans sagði á dögunum að leikmaðurinn gæti neyðst til að fara úr spænsku deildinni vegna skattamála.

„Neymar er sáttur hjá Barcelona og það er mikilvægast fyrir okkur," sagði Robert Fernandez tæknilegur ráðgjafi Barcelona.

„Við munum ná samkomulagi við Neymar. Ég er ekki í vafa um það. Hann verður leikmaður Barcelona í mörg ár."
Athugasemdir
banner
banner