Heimild: 433
Goðsögnin Eiður Smári Guðjohnsen æfði með Pepsi deildar liði Breiðabliks í kvöld.
Frá þessu er greint á 433.is en Eiður Smári er staddur hér á landi eftir að tímabilinu í kínverska boltanum lauk.
Eiður Smári fékk að æfa hjá Arnari Grétarssyni en þeir unnu saman á sínum tíma hjá AEK í Grikklandi.
Eiður er þó ekki að fara að semja við Blika en hann er í leit að félagi erlendis og mun væntanlega skrifa undir hjá einhverju félagi í Evrópu þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.
„Hann er bara að fá að halda sér í formi og mætti á æfingu í kvöld, það fór ekkert á milli mála að hann var mættur á æfingu því það voru margir að horfa,“ sagði Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdarstjóri knattspyrnudeildar Breiðabliks, í samtali við 433.is.
Athugasemdir