Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   mið 25. nóvember 2015 08:40
Jóhann Ingi Hafþórsson
Manchester City án sex leikmanna gegn Juventus
Wilfried Bony verður ekki með City í kvöld.
Wilfried Bony verður ekki með City í kvöld.
Mynd: Getty Images
Manchester City verður án sex leikmanna er liðið mætir Juventus í kvöld en leikurinn er spilaður á Ítalíu.

City er nú þegar komið í 16 liða úrslitin en berst nú við Juventus um að ná efsta sæti riðilsins.

Elaquim Mangala, Pablo Zabaleta, Vincent Kompany, Samir Nasri, David Silva og Wilfried Bony eru allir fjarverandi vegna meiðsla.

City hefur unnið síðustu þrjá leiki sína í Meistaradeildinni og þar á meðan Sevilla tvisvar.

Juventus vann hins vegar fyrri leik þessara liða á Etihad vellinum í Manchester.

Athugasemdir
banner
banner
banner