Bayern Munchen unnu öruggan 4-0 sigur á Olympiacos í gærkvöldi og var það fjórði sigur liðsins í keppninni á leiktíðinni.
Thomas Muller bætti með sigrinum met og skákaði þá við mönnum eins og Lionel Messi, Cristiano Ronaldo og Raul.
Muller skoraði þriðja mark Bayern í leiknum en þetta var 50.sigur Þjóðverjans í Meistaradeildinni en hann varð yngsti leikmaðurinn til að afreka það en hann er aðeins 26 ára og 72 daga gamall.
Douglas Costa, Robert Lewandowski og Kingsley Coman skoruðu einnig í leiknum en sigur Bayern var ansi öruggur.
Athugasemdir