Danski framherjiinn Patrick Pedersen er á förum frá Val samkvæmt frétt 433.is.
Patrick er á leið til norska félagsins Viking en það hefur verið í viðræðum við Val undanfarnar vikur.
Sigurður K. Pálsson, stjórnarmaður í Val, vildi þó ekki staðfesta þetta í samtali við Fótbolta.net í dag en sagði að frétta gæti verið að vænta.

Samkvæmt heimildum 433.is borgar Viking meira en 30 milljónir íslenskra króna fyrir Pedersen en hann á að fylla skarð Jóns Daða Böðvarssonar sem er búinn að semja við þýska félagið Kaiserslautern.
Hinn 24 ára gamli Patrick varð markakóngur í Pepsi-deildinni í sumar en hann hefur skorað 28 mörk í 47 leikjum með félaginu.
Athugasemdir