Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 25. nóvember 2015 21:00
Arnar Geir Halldórsson
Scholes: Benítez ekki betri en Ancelotti
Ekki hrifinn af Rafa
Ekki hrifinn af Rafa
Mynd: EPA
Manchester United goðsögnin Paul Scholes segir það hafa komið sér á óvart þegar Rafa Benítez var ráðinn knattspyrnustjóri Real Madrid.

Benítez tók við Real Madrid af Carlo Ancelotti síðasta sumar en farið er að hitna undir Benítez hjá spænska stórveldinu eftir að liðið steinlág fyrir erkifjendunum í Barcelona.

„Það kom mér mjög á óvart þegar Benitez var ráðinn," segir Scholes.

„Mér fannst Ancelotti vera frábær knattspyrnustjóri fyrir Real Madrid og það er sama við hvaða leikmann þú talar við sem hefur spilað undir honum, það tala allir vel um hann,"

„Ef þú ætlar að reka þjálfarann verðuru að fá betri mann í staðinn og ég held að Benítez sé það ekki,"
segir Scholes.

Athugasemdir
banner
banner
banner