Knattspyrnuferill sænsku goðsagnarinnar Zlatan Ibrahimovic hófst hjá Malmö og í kvöld sneri hann aftur á fornar slóðir með liði sínu Paris Saint Germain.
Zlatan skoraði eitt af fimm mörkum Parísarliðsins í öruggum sigri en hann segir draum hafa verið að rætast.
„Einn af mínum draumum rættist í kvöld. Að koma hingað aftur og til að toppa það tókst mér að skora."
„Hérna hófst þetta og að koma hingað aftur með PSG þegar ég er á hátindi ferilsins er ólýsanleg tilfinning."
„Ég er mjög ánægður. Alla tíð hefur samband mitt við stuðningsmenn Malmö verið frábært og það skiptir mig miklu," sagði Zlatan.
Átján ára gamall hóf Zlatan að spila fyrir Malmö árið 1999 en tveimur árum síðar var hann seldur til Ajax eftir að hafa skorað 16 mörk í 40 leikjum fyrir sænska liðið.
Athugasemdir