Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 25. desember 2014 19:00
Alexander Freyr Tamimi
Ánægður með byrjun James hjá Real Madrid
James hefur komið sterkur inn í lið Real Madrid.
James hefur komið sterkur inn í lið Real Madrid.
Mynd: Getty Images
Carlos Bacca, framherji Sevilla, segist vera mjög ánægður með frammistöðu samlanda síns James Rodriguez hjá Real Madrid til þessa.

Þeir Bacca og James eru báðir landsliðsmenn Kólumbíu og eru afar góðir vinir, en sá síðarnefndi gekk til liðs við Real Madrid frá Monaco eftir HM síðasta sumar.

James hefur stimplað sig vel inn í lið Real Madrid og er Bacca ánægður með samlanda sinn.

,,Það fylgir því mikil ábyrgð að spila fyrir Real Madrid, en hann hefur það sem þarf til að ná árangri þar," sagði Bacca.

,,Ég vissi að hann yrði til í slaginn vegna þess að hann er gríðarlega metnaðargjarn og vill alltaf gera betur."

,,Hann sýnir það í hverjum leik hvers megnugur hann er og ég er mjög ánægður fyrir hans hönd."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner