Þýska úrvalsdeildarfélagið Borussia Monchengladbach er í viðræðum við Chelsea um kaup á belgíska leikmanninum, Thorgan Hazard, en hann er á láni hjá þýska liðinu.
Hazard, sem er 21 árs gamall, er yngri bróðir Eden Hazard, sem er lykilmaður í liði Chelsea en báðir ólust þeir upp hjá franska stórliðinu Lille
Thorgan var keyptur til Chelsea á sama tíma og Eden en hann hefur verið á láni frá enska félaginu síðustu tvö ár.
Hann er nú á láni hjá Gladbach í Þýskalandi en hann er lykilmaður í liðinu. Gladbach er nú í viðræðum við Chelsea um kaup á leikmanninum
Gladbach telur að Hazard komi til með að spilar lykilhlutverk í liðinu á komandi árum en fyrst verður félagið að sannfæra Chelsea um að leyfa honum að yfirgefa félagið.
Athugasemdir