Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 25. desember 2014 20:00
Alexander Freyr Tamimi
Harry Redknapp botnar ekkert í gagnrýninni á Wenger
'Arry hefur fulla trú á Wenger.
'Arry hefur fulla trú á Wenger.
Mynd: Getty Images
Harry Redknapp, stjóri Queens Park Rangers, botnar ekkert í þeirri gagnrýni sem Arsene Wenger hefur fengið á tímabilinu.

QPR og Arsenal mætast á annan í jólum, en Wenger hefur fengið talsverða gagnrýni frá stuðningsmönnum á þessari leiktíð, og jafnvel undanfarin tímabil einnig.

,,Ég botna ekkert í því af hverju Arsene Wenger ætti að fá að heyra það," sagði Redknapp við blaðamenn.

,,Arsenal er gott lið og ég er nokkuð viss um að þeir endi í topp fjórum, ég get ekki séð neitt annað gerast. Þeir enda í topp fjórum á hverju ári og ég býst ekki við undantekningu í ár."

,,Þeir eru með frábæra leikmenn og þeir hafa lent í miklum meiðslum hjá lykilmönnum. En þetta er gott lið á að horfa."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner