Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 25. desember 2014 16:02
Brynjar Ingi Erluson
PSG vill fá Januzaj á láni
Mynd: Getty Images
Franska stórliðið Paris Saint Germain hefur ákveðið að blanda sér í baráttuna um Adnan Januzaj, leikmann Manchester United en Le Parisien greinir frá þessu í dag.

Januzaj mun líklega fara frá Manchester United á láni í janúar en Louis van Gaal, stjóri liðsins, vill gefa honum aukna reynslu.

PSG hefur mikinn áhuga á að fá Januzaj á láni en félagið þarf að passa eyðslu í leikmenn útaf fjárhagsreglum FFP.

Belgíski landsliðsmaðurinn vill ólmur spila Meistaradeildarfótbolta og heillar PSG hann mikið en Real Sociedad og Napoli vilja meðal annars fá hann.
Athugasemdir
banner
banner
banner