Miðjumaðurinn ungi Arnar Logi Sveinsson hefur gengið til liðs við Selfyssinga.
Arnar Logi kemur til Selfyssinga eftir að hafa leikið með Ægi í yngri flokkunum.
Arnar er fæddur árið 1997 en hann skrifaði undir þriggja ára samning við Selfyssinga.
Arnar Logi kemur til Selfyssinga eftir að hafa leikið með Ægi í yngri flokkunum.
Arnar er fæddur árið 1997 en hann skrifaði undir þriggja ára samning við Selfyssinga.
Þrátt fyrir ungan aldur á Arnar Logi níu leiki að baki í deild og bikar með Ægi en hann var einungis 14 ára þegar hann spilaði með liðinu í bikarnum árið 2011.
Síðastliðið sumar spilaði Arnar Logi fimm leiki með Ægismönnum í 2. deildinni.
Hér til hliðar má sjá Arnar ásamt Zoran Miljkovic þjálfara Selfyssinga og Jóni Steindóri Sveinssyni aðstoðarþjálfar.
Athugasemdir