Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mán 26. janúar 2015 07:30
Alexander Freyr Tamimi
Bebe: Ronaldo er ennþá góð manneskja
Bebe vill að Ronaldo verði fyrirgefið.
Bebe vill að Ronaldo verði fyrirgefið.
Mynd: Getty Images
Hinn portúgalski Bebe segir að Cristiano Ronaldo sé ekki verri maður þó að hann hafi misst stjórn á skapi sínu í 2-1 sigri Real Madrid gegn Cordoba um helgina.

Ronaldo fékk að líta rauða spjaldið fyrir að kýla og sparka í varnarmanninn Edimar, sem sjálfur hefur fyrirgefið leikmanninum.

Þó að Ronaldo hafi yfirgefið United ári áður en Bebe gekk í raðir félagsins segir sá síðarnefndi að þeir samlandarnir séu góðir vinir og vill að Ronaldo verði fyrirgefið.

,,Cristiano hefur nú þegar beðist afsökunar," sagði Bebe.

,,Þetta gæti gerst fyrir hvaða leikmann sem er. Þetta hefur gerst fyrir mig og marga aðra leikmenn sem ég þekki."

,,Ég þekki Cristiano frá tíma okkar hjá Manchester United. Hann er góður vinur og góð manneskja."

,,Hann er besti leikmaður sögunnar og það sem gerðist fyrir hann gæti gerst fyrir hvern sem er á svona mikilvægu augnabliki í leiknum."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner