Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 26. janúar 2015 19:37
Ívan Guðjón Baldursson
Dregið í enska bikarnum: Spennandi viðureign á Selhurst
Liverpool eða Bolton eiga erfiðan leik á Selhurst Park í 16-liða úrslitunum.
Liverpool eða Bolton eiga erfiðan leik á Selhurst Park í 16-liða úrslitunum.
Mynd: Getty Images
Búið er að draga í 16-liða úrslit enska FA bikarsins þar sem nokkrir úrvalsdeildarslagir eru á dagskrá.

Liverpool eða Bolton mun eiga erfiðan leik við Crystal Palace framundan á meðan Manchester United þarf sigur til að eiga útileik gegn Preston North End eða Sheffield United.

Arsenal tekur á móti Middlesbrough, Bradford fær Sunderland eða Fulham í heimsókn og Blackburn Rovers mætir Stoke City.

Aston Villa mætir Leicester City í úrvalsdeildarslag rétt eins og West Bromwich Albion sem á heimaleik gegn West Ham.

16-liða úrslit:
Crystal Palace - Liverpool eða Bolton
Aston Villa - Leicester City
Arsenal - Middlesbrough
West Brom - West Ham
Bradford - Sunderland eða Fulham
Blackburn - Stoke City
Derby County - Reading
Preston eða Sheffield Utd - Cambridge eða Man Utd
Athugasemdir
banner
banner