mán 26. janúar 2015 11:00
Magnús Már Einarsson
Drogba vill taka tímabil til viðbótar með Chelsea
Drogba fagnar marki.
Drogba fagnar marki.
Mynd: Getty Images
Framherjinn reyndi Didier Drogba segist vilja spila áfram með Chelsea á næsta tímabili.

Hinn 36 ára gamli Drogba snéri aftur til Chelsea síðastliðið sumar eftir að hafa stoppað við í Kína og Tyrklandi.

,,Þegar þú hefur afrekað svona mikið og unnið svona marga titla eins og við höfum gert undanfarin tíu ár þá skapar það eitthvað sérstakt," sagði Drogba.

,,Ég vona að félagið hafi trú á mér. Ég er hluti af þessari stóru fjölskyldu og vonandi finnum við lausn sem hentar best fyrir alla aðila til að félagið nái sem bestum árangri."

,,Þegar ég fór síðast frá Chelsea sagði ég að ég væri búinn að gera allt sem ég vildi gera en núna er ég ekki á sömu skoðun. Það er verk óunnið. Ég elska þetta félagið og vil vera hluti af því í framtíðinni með nýju leikmönnunum."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner